User manual
NOTKUN SKOLUNARLÖGS
Ađvörun Notið aðeins gljáa fyrir
uppþvottavélar.
Aldrei setja nein önnur efni í gljáahólfið
(t.d. hreinsiefni fyrir uppþvottavélar eða
þvottalög). Það myndi skemma heimil-
istækið.
Gljái tryggir góða skolun og bletta- og
rákalausa þurrkun.
Gljáa er sjálfkrafa bætt við í síðustu
skolumferðinni.
1. Opnið hólfið með því að þrýsta á losun-
arhnappinn (A).
2. Hellið gljáanum í hólfið. Hæsta leyfilega
áfyllingarmagn er merkt með ,,max".
Skammtarinn tekur um 110 ml af gljáa
en það dugar fyrir á milli 16 og 40
þvotta, eftir því hvaða skammt er stillt á.
3. Gætið þess að lokið sé fest vel á eftir
hverja áfyllingu.
Ef gljái hefur hellst niður við áfyllinguna
skal þrífa hann upp með rakadrægum
klút til að ekki freyði of mikið í næsta
þvotti.
Stillið gljáaskammtinn eftir þvotta- og þurrk-
unarárangri með 6 stillinga kvarðanum (still-
ing 1= minnsti skammtur, stilling 6= mesti
skammtur).
Uppþvottavélin kemur á stillingu 4 úr verk-
smiðjunni.
Aukið skammtinn ef vatnsdropar eða kalk-
blettir eru á leirtauinu eftir þvott.
Minnkið hann ef það eru klístrugar hvítar
rákir á diskunum eða bláleit filma á gleri eða
hnífsblöðum.
Bætið gljáa í þegar gaumvísirinn (B) verður
glær.
8 progress