User manual
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Varúđ Takið heimilistækið úr sambandi
áður en það gengst undir viðhald.
Í kælieiningu þessa heimilistækis eru
vetniskolefni; því mega aðeins löggildir
tæknimenn framkvæma viðhald og
endurhleðslu á því.
Regluleg þrif
Þrífa þarf búnaðinn reglulega:
• hreinsið innra rýmið og fylgihlutina með
volgu vatni og mildri sápu.
• skoðið reglulega dyraþéttingarnar og
strjúkið af þeim óhreinindi svo að þær séu
hreinar og lausar við smáagnir.
• skolið og þurrkið vandlega.
Mikilvægt! Ekki toga í, færa til eða
skemma neinar pípur og/eða kapla inni í
skápnum.
Aldrei nota uppþvottalög, slípiuft, hreinsiefni
með sterkum ilmefnum eða vaxbón til að
hreinsa innra byrðið þar sem það skemmir
yfirborðið og skilur eftir sterka lykt.
Hreinsið þéttinn (svört rist) og þjöppuna af-
tan á heimilistækinu með bursta. Það bætir
afköst heimilistækins og sparar rafmagn.
Mikilvægt! Gætið þess að skemma ekki
kælikerfið.
Mörg efni sem framleidd eru til að hreinsa
vinnufleti í eldhúsum innihalda efni sem geta
skemmt plastið sem notað er í þessu heim-
ilistæki. Þess vegna er mælt með því að
ytra byrði þessa heimilistæki sé aðeins þrifið
með volgu vatni með örlitlum uppþvottalegi
í.
Að þrifum loknum það skal stinga búnaðin-
um aftur í samband við rafmagn.
Ískápurinn afþíddur
Frost eyðist sjálfkrafa af eimi ísskápshólfsins
í hvert sinn sem véldrifna þjappan stöðvast,
meðan á venjulegri notkun stendur. Afþídda
vatnið rennur út í gegnum niðurfall inn í sér-
stakt hólf aftan á heimilistækinu, yfir vél-
drifnu þjöppunni, þar sem það gufar upp.
Mikilvægt er að hreinsa öðru hvoru frár-
ennslisop afþídds vatn í miðri rennu ís-
skápshólfsins svo að vatnið flæði ekki út fyr-
ir og leki á matinn í ísskápnum. Notið þar til
gerðan meðfylgjandi hreinsipinna sem er til-
búinn inni í frárennslisopinu.
Frystirinn afþíddur
Eitthvað frost myndast alltaf á hillum
frystisins og í kringum efra hólfið.
Mikilvægt! Afþíðið frystinn þegar frostlagið
nær um 3-5 mm. þykkt.
Frostið er fjarlægt svona:
1. Slökkvið á heimilistækinu.
2. Fjarlægið allan mat sem er í geymslu,
vefjið nokkrum lögum af dagblöðum
utan um hann og komið fyrir á svölum
stað.
3. Hafið dyrnar opnar.
4. Þegar afþiðnun er lokið skal þurrka inn-
ra byrðið vel og stinga klónni aftur í.
5. Kveikið á heimilistækinu.
6. Stillið hitastillinn á hámarkskulda og lát-
ið heimilistækið vera í gangi í tvo til þrjá
klukkutíma á þeirri stillingu.
7. Setjið matinn sem tekinn var út aftur inn
í hólfið.
progress 19