User manual
einungis notaður með lengri
þvottakerfum.
• Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Sjá leiðbeiningarnar á
umbúðum þvottaefnisins.
Hvað á að gera ef þú vilt hætta
að nota samsettar
þvottaefnistöflur
Áður en þú notar þvottaefni, salt eða gljáa
út af fyrir sig skaltu fylgja eftirfarandi
verklagi.
1.
Stilltu vatnsmýkingarbúnaðinn á hæsta
stig.
2.
Gakktu úr skugga um að salthólfið og
hreinsiefnahólfið séu bæði full.
3.
Kveiktu á stysta kerfinu með
skolunaferli. Ekki bæta við þvottaefni og
ekki hlaða neinu í grindurnar.
4.
Þegar kerfinu er lokið, stilltu þá
vatnsmýkingarbúnaðinn í samræmi við
herslustig vatnsins á þínu svæði.
5.
Stilltu losað magn gljáa.
Að raða í grindurnar
• Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
• Ekki skal setja í vélina hluti sem eru
gerðir úr tré, horni, áli, pjátri og kopar.
• Ekki skal setja hluti í tækið sem geta
tekið í sig vatn (svampa, viskustykki).
• Fjarlægðu matarleifarnar af hlutunum.
• Mýkja skal brenndar matarleifar sem eru
á hlutunum.
• Raðaðu hlutum sem eru holir að innan
(þ.e. bollum, glösum og pottum) í vélina
þannig að opið vísi niður.
• Gakktu úr skugga um að hnífapör og
leirtau festist ekki saman. Settu skeiðar
með öðrum hnífapörum.
• Gakktu úr skugga um að glös snerti ekki
önnur glös.
• Leggðu smáa hluti í hnífaparakörfuna.
• Settu létta hluti í efri grindina. Gakktu úr
skugga um að hlutirnir hreyfist ekki til.
• Gakktu úr skugga um að vatnsarmarnir
geti hreyfst óhindrað áður en kerfi er sett
í gang.
Áður en kerfi er sett af stað
Gangið úr skugga um að:
• Síurnar eru hreinar og rétt uppsettar.
• Lokið á salthólfinu þarf að vera þétt.
• Vatnsarmarnir eru ekki stíflaðir.
• Það sé salt og gljái til staðar (nema þú
notir samsettar þvottaefnistöflur).
• Staða hluta í körfunum sé rétt.
• Kerfið eigi við um þá tegund hleðslu og
þau óhreinindi sem í hlut eiga.
• Verið sé að nota rétt magn þvottaefnis.
Að taka úr körfurnum.
1.
Látið diska kólna áður en þeir eru teknir
úr heimilistækinu. Heitt leirtau er
brothætt.
2. Tæmið neðri körfuna fyrst og svo þá
efri.
Í lok kerfisins getur ennþá verið
vatn eftir í hliðum og í hurðinni á
tækinu.
MEÐFERÐ OG ÞRIF
AÐVÖRUN! Áður en viðhald fer
fram á tækinu skal slökkva á því
og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Óhreinar síur og stíflaðir
vatnsarmar draga úr árangri
þvottakerfisins. Athugaðu þær
reglulega og hreinsaðu ef þörf
krefur.
Hreinsun á síum
Síukerfið er gert út 3 hlutum.
14 Progress