User manual
Blandið skeiðum saman við önnur hnífapör
svo að þær festist ekki saman.
Notið hnífaparagrindina. Ef hnífapörin eru of
stór til að hægt sé að nota hnífaparagrind-
ina er hægt að taka hana úr.
Efri karfa
Efri karfan er fyrir diska (hámark 24 sm að
þvermáli), undirskálar, salatskálar, bolla,
glös, potta og lok. Raðið hlutunum þannig
að vatn snerti alla fleti.
Forðist að setja diska í fyrstu þrjár
grópirnar fremst í körfunni. Látið disk-
ana halla fram.
Setjið glös á háum fæti í bollarekkana og
með fæturna vísandi upp. Ef um lengri hluti
er að ræða eru bollarekkarnir felldir upp.
Hæð efri körfu stillt
Ef setja á stóra diska í neðri körfuna þarf
fyrst að færa efri körfuna upp í hærri stöðu.
Hámarkshæð leirtaus
efri karfa
neðri
karfa
Hærri staða 20 sm 31 sm
Lægri staða 24 sm 27 sm
Fylgið eftirfarandi skrefum við að færa efri
körfuna í hærri stöðuna:
1. Dragið körfuna út þar til hún stoppar.
2. Lyftið henni varlega báðum megin þar til
búnaðurinn smellur fastur og karfan er
stöðug.
Fylgið eftirfarandi skrefum til að færa efri
körfuna í lægri stöðuna:
1. Dragið körfuna út þar til hún stoppar.
2. Lyftið henni varlega upp báðum megin.
3. Haldið búnaðinum og látið síga hægt
aftur niður.
Varúđ
• Ekki lyfta eða láta körfuna bara síga
öðrum megin.
• Ef karfan er í efri stöðunni, ekki setja
þá bolla upp á bollarekkana.
progress 9