User manual

Hreinsið ofnhurðina með volgu vatni og mjúk-
um klút. Notið ekki ræstiefni, stálull, rífandi
svampa eða sýrur sem gæti skemmt sérstakt
hitavarið yfirborð innri glerplötunnar.
Þegar búið er að þrífa innri plötuna er hún sett
á sinn stað í hurðinni. Hurðin er sett aftur á
ofninn; Farið að í öfugri röð. Gætið að réttri
staðsetningu á glerplötunum.
Til að rétt sé gert þá farið að sem hér segir:
1. Setja þarf innri plötuna með ramma á öll-
um hliðum þannig í að ramminn snúi út.
Snertið sjáanlegt yfirborð. Ef ekkert hrjúft
yfirborð er á plötunni þá er hún sett rétt í.
2. Komið innri plötunni fyrir eins og sýnt er á
myndinni.
Þegar búið er að setja plöturnar í ofnhurðina
þá festið þær í öfugri röð í samræmi við lið
8 í leiðbeiningunum.
Mikilvægt! Þrífið aldrei ofnhurðina
meðan hún er heit því þá gætu
glerplöturnar sprungið. Ef rispur eða
sprungur sjást á glerplötunni þá hafið
samband við næsta þjónustuaðila til að
láta skipta um gler.
Gerðir úr ryðfríu stáli eða áli:
Hreinsið ofnhurðina og stjórnborðin á ofnum
úr ryðfríu stáli eða áli með rökum svampi og
þurrkið síðan varlega með mjúkum klút. Notið
aldrei málmpúða, stálull, sýrur eða ræstiefni
við þrifin vegna þess að þau geta rispað yfir-
borðið.
Þrif á þéttiköntum ofnhurðarinnar
Umhverfis opið á ofninum er þéttikantur.
Mikilvægt! Athugið ástand þéttikantsins
reglulega.
Ef skemmdir á þéttikantinum koma í ljós
þá hafið undir eins samband við næsta
þjónustuaðila. Notið ekki ofninn þar til
búið er að skipta um þéttikant.
Hvað skal gera ef...
Ef ofninn starfar ekki rétt þá gætið að eftirfar-
andi atriðum áður en haft er samband við
þjónustuaðila Electrolux.
VANDAMÁL ÚRBÆTUR
Ofninn er ekki í sambandi. Athugið hvort búið er að velja eldunarkerfi og
hitastig,
eða
Gangið úr skugga um að ofninn sé rétt tengdur
og rofinn á innstungunni eða straumgjafa sé á
ON.
Það kviknar ekki á gaumljósinu fyrir hitastilli ofn-
sins.
Notið hitastillinn til að velja hitastig,
eða
notið ofnstillinn til að velja kerfi.
Það kviknar ekki á inniljósinu í ofninum. notið ofnstillinn til að velja kerfi.
eða
athugið peruna og skiptið um eftir þörfum (sjá
"Skipt um peruna í ofninum").
16 progress