User manual

vera í gangi í minnst 2 tíma á hárri stillingu
áður en matvælin eru sett í hólfið.
Mikilvægt! Ef afþiðnun verður fyrir slysni, til
dæmis af því að rafmagnið fer af, og
rafmagnsleysið hefur varað lengur en gildið
sem sýnt er í tæknieiginleikatöflunni
undir ,,hækkunartíma", þarf að neyta
afþídda matarins fljótt eða elda hann strax
og frysta hann svo aftur (eftir kælingu).
Afþíðing
Djúpfrystan eða frystan mat er hægt að af-
þíða við stofuhita fyrir notkun.
Litla bita af mat má jafnvel sjóða þegar þeir
eru enn frosnir, beint úr frystinum. í þessu
tilviki tekur suðan lengri tíma.
GÓÐ RÁÐ
Ráð varðandi frystingu
Nokkrar mikilvægar ábendingar til að hjálpa
þér að fá sem mest út úr frystingunni:
hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á 24 klst. er sýnt á tegundarspjald-
inu;
frystingarferlið tekur 24 tíma. Ekki skal
bæta neinum ófrosnum mat í frystinn á
því tímabili;
aðeins skal frysta fersk og vel hreinsuð
gæðamatvæli;
frystið mat í litlum skömmtum til að hann
geti frosið hratt og alveg í gegn og til
þess að seinna sé hægt að afþíða aðeins
það magn sem þarf;
pakkið matnum inn í álpappír eða plast
og gætið þess að pakkarnir séu loftþéttir;
ekki láta ferskan, ófrosinn mat snerta mat
sem er þegar frosinn, til að forðast hækk-
un hitastigs þess síðarnefnda;
magur matur geymist betur og lengur en
feitur; salt minnkar geymsluþol matar;
vatn frýs og ef þess er neytt strax eftir að
það er tekið úr frystinum kann það að
valda frostbruna á húð;
ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna á
hverjum pakka sem settur er í frystinn til
að hægt sé að fylgjast með geymslutím-
anum.
Ráð varðandi geymslu frystra matvæla
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem
best, skal:
gæta þess að frystivara úr búð hafi verið
geymd á fullnægjandi hátt í búðinni;
tryggja að frystivara sé flutt úr búðinni og í
frystinn á sem skemmstum tíma;
ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur;
eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og
ekki er hægt að frysta hann aftur;
ekki geyma matvöru lengur en framleið-
andi vörunnar mælir með.
MEÐFERÐ OG ÞRIF
Varúđ Takið heimilistækið úr sambandi
áður en það gengst undir viðhald.
Í kælieiningu þessa heimilistækis eru
vetniskolefni; því mega aðeins löggildir
tæknimenn framkvæma viðhald og
endurhleðslu á því.
Regluleg þrif
Þrífa þarf búnaðinn reglulega:
hreinsið innra byrðið og fylgihlutina með
volgu vatni og bökunarsóda (5 ml á móti
0,5 lítrum af vatni)
skoðið reglulega dyraþéttingarnar og
strjúkið af þeim óhreinindi svo að þær séu
hreinar og lausar við smáagnir
skolið og þurrkið vandlega.
Mikilvægt! Ekki toga í, færa til eða
skemma neinar pípur og/eða kapla inni í
skápnum.
Aldrei nota uppþvottalög, slípiduft, hreins-
iefni með sterkum ilmefnum eða vaxbón til
að hreinsa innra byrðið þar sem það
skemmir yfirborðið og skilur eftir sterka lykt.
Einu sinni á ári skal fjarlægja loftristina af
botni tækisins og hreinsa loftraufarnar með
ryksugu. Það bætir afköst heimilistækins og
sparar rafmagn.
Varúđ Gætið þess að skemma ekki
kælikerfið.
progress 17