User manual
Ofnkerfi Notkun
Efra og neðra hit-
aelement
Hitinn berst bæði að ofan og neðan og dreifist jafnt um allan ofn-
inn. Forstillt hitastig: 200
Neðsta element
ofnsins
Hitinn berst aðeins frá neðsta hitaelementi ofnsins. Þessi stilling
hentar vel við að ljúka eldun á réttum. Forstillt hitastig: 250ºC
Rafmagnsgrill
Hitagrill er önnur aðferð við að elda fæðutegundir sem venjulega
eru ekki grillaðar. Grillelementið og vifta ofnsins vinna samtímis
og láta heitt loft leika um matinn. Forstillt hitastig: 180
Hæsta hitastig: 200 °C.
Grill og snúningst-
einn
Hægt er að nota snúningsteininn til að grilla kjöt eða kebab og
minni kjötbita. Forstillt hitastig: 250
Afþiðnun
Ofnviftan starfar án hita og kemur hringrás á loft inni í ofninum
sem er við stofuhita. Þetta kerfi hentar sérstaklega vel fyrir að
afþíða viðkvæmar tegundir matar sem hiti gæti valdið skemmd-
um á, t.d. fylltar tertur, tertur með kremi, smjördeigskökur, brauð
og annan gerbakstur.
Sjálfhreinsunar-
búnaður
Þetta kerfi gerir kleift að hreinsa ofninn vandlega að innan.
Notkun ofnsins
Mikilvægt! Leggið ekki álpappír eða
bökunarplötur o.s.frv. á ofnbotninn vegna
þess að hitinn sem þá myndast getur
skemmt glerungshúð ofnsins. Setjið föt og
potta, eldföst mót og potta og líka álbakka á
hilluna sem sett er í rennurnar fyrir hillur.
Þegar matur er hitaður þá myndast gufa líkt
og í katli. Þegar gufan kemst í snertingu við
glerið á ofnhurðinni þá þéttist hún og myndar
örsmáa dropa.
Til að draga úr gufumyndun þá á alltaf að
forhita ofninn í 10 mínútur.
Við mælum með því að rakinn sé þurrkaður
af eftir hverja eldun.
Mikilvægt! Ávallt skal grilla með
ofnhurðina lokaða.
Opnið ofnhurðina alltaf með varúð. Látið
ekki hurðina "detta niður" heldur haldið við
hana með handfanginu þar til hún er alveg
opin
Ofninn er með fjórar plötuhillur.
Plötuhillurnar eru númeraðar neðan frá
og upp eins og sést á myndinni.
Ofnplötum sem rennt er inn þarf alltaf að
ýta alla leið inn (sjá mynd).
Setjið ekki eldunarílát eða potta beint á
ofnbotninn.
Heitt loft
Maturinn eldast vegna þess að heitu lofti er
blásið um ofninn að innan með viftu sem
komið er fyrir á bakvegg ofnsins.
Hitinn berst jafnt og hratt til allra hluta ofnsins.
Þetta þýðir að hægt er að elda mismunandi
gerðir matar samtímis eða mat sem komið er
fyrir á mismunandi ofnhillum.
Kostir þess að elda með þessu kerfi eru:
progress 7










