Instruction for Use
5
Íslenska
Blandarinn undirbúinn fyrir notkun
Fyrir fyrstu notkun
Áður en þú notar blandarann þinn í fyrsta skipti
skaltu þurrka undirstöðu hans með volgum,
sápuvættum klút. Þurrka með rökum klút,
og síðan með mjúkum klút. Könnuna, lokið
og mælibikarinn skal þvo í volgu sápuvatni,
eða setja sápu og volgt vatn í könnuna. Settu
könnuna á undirstöðu blandarans og blandaðu
til að hreinsa (sjá umhirða og þrif, bls. 9). Skolaðu
síðan hlutina og þurrkaðu þá.
Samsetning blandarans
1. Stilltu lengd rafmagnssnúrunnar eftir
þörfum þínum.
2. Settu könnuna á undirstöðu blandarans.
3. Settu í samband við jarðtengdan tengil.
Blandarinn er nú tilbúinn til notkunar.
4. Áður en kannan er tekin af undirstöðunni
skal alltaf ýta á „O“ og taka rafmagnssnúruna
úr sambandi. Ef PÚLS-hamur (
) er
notaður skaltu gæta þess að slökkt sé á
blikkandi ljósinu (með því að ýta á „O“) og
taka síðan úr sambandi. Lyftu könnunni
beint upp af undirstöðu blandarans.
Hætta á raflosti
Settu í samband við jarðtengdan
tengil.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Ef þessum þessum leiðbeiningum
er ekki fylgt getur það leitt til
dauða, eldsvoða eða raflosts.
AÐVÖRUN