Instruction for Use
4
Íslenska
Atriði blandara
Þessi blandari var smíðaður og prófaður eftir
gæðastöðlum KitchenAid fyrir bestu vinnslu,
langan og traustan endingartíma.
Öflugur mótor
Sterkbyggður 0,9 hestafla mótor gefur aflið fyrir
frábæra vinnslu í öllum blöndunarverkefnum –
frá því að mauka sósur til þess að gera bitastætt
salsa, eða mylja á nokkrum sekúndum könnu
af ís eða frosnum ávöxtum fyrir silkimjúkan
smoothie-drykk.
Auðhreinsanleg kanna, hönnuð sem
eitt áhald
Hönnun, sem eitt áhald, sameinar kosti
hagnýtrar könnu og vandaðra innri rasta í
könnunni, sem beina matnum stöðugt að
blaðinu til að fá hraða og nákvæma blöndun.
Hönnuð sem eitt áhald þýðir einnig að hægt
er að þrífa það án þess að fjarlægja blaðið
og aðra hluta. Kannan þolir miklar sveiflur
í hitastigi – frá sjóðandi súpum til frosinna
margaríta drykkja. Kannan er með víðan stút
til að tryggja að hægt sé að hella snurðulaust.
Könnuna má setja í uppþvottavél.
Kanna
Glær, kanna, með 1,5 L rúmtaki;
þolir högg, rispur og bletti. Þægilega
hannað handfang könnu býður upp
á þétt grip.
Þétt lok með glærum, 60 ml mælibikar
Býður upp á trausta þéttingu. Sveigjanlegt
lokið heldur þéttingunni allan endingartíma
Blandarans. Lokinu fylgir laus 60 ml bikar sem
auðveldar mælingu og ísetningu hráefna.
Ryðfríir stálhnífar
Stórir og beittir hnífgaddar eru staðsettir
á fjórum mismunandi flötum fyrir hraða,
nákvæma og stöðuga blöndun.
Endingargóð stálstyrkt tengi
Tengi, gert fyrir heimilisnotkun, með 12
samlæsandi tönnum býður upp á beina
tengingu frá mótornum til hnifsins. Tengi
könnunar er húðað fyrir hljóðlátari vinnslu.
Hraðavalshnappar
Búðu til frosna drykki og maukaðar sósur
eða súpur á nokkrum sekúndum. Notaðu
blandarann af sjálfsöryggi og með samræmi á
öllum hraðastillingum. HRÆRA (
)
,
SAXA (
), BLANDA ( ), MAUKA ( )
og KREMJA (
). PÚLS ( ) sem hægt er
að nota á öllum fimm hröðunum. Aðgerðin
að MYLJA ÍS (
) er sérstaklega ætlaður til
að mylja ís og púlsar sjálfvirkt með breytilegu
millibili fyrir hagstæðustu útkomu.
Intelli-Speed™ mótorstýring
Vönduð Intelli-Speed™ stýring vinnur sjálfvirkt
að því að halda stöðugum hraða – jafnvel
gegnum breytingar á þéttleika þegar hráefnum
er bætt út í. Þessi þróaða KitchenAid hönnun
viðheldur besta blöndunarhraða fyrir hvert
matargerðarverkefni og hverja stjórnborðsstillingu.
Soft Start blöndunaraðgerð
Blandarinn fer hægar í gang til að draga
mat að hnífnum og eykur síðan snögglega
hraðann upp að valinni hraðastillingu.
Þetta hönnunaratriði dregur úr höggi við
gangsetningu og gerir þér kleift að hafa
hendurnar frjálsar.
Steypt málmundirstaða
Þung undirstaða úr steyptum málmi tryggir
stöðuga, hljóðláta vinnslu þegar blönduð er
full kanna af hráefnum. Fjórir gúmmífætur
á breiðri gegnheilli undirstöðu veita grip
án þess að renna eða hoppa til. Auðvelt er
að þrífa undirstöðuna sem er slétt og ávöl.
Undirstaðan er með snúrugeymslu undir.
Clean Touch stjórnborð
Tekur augnablik að þurrka af því. Slétt
stjórnborð hefur engar rifur eða skil sem
hráefni getur festst í.