User manual
Ofnaðgerð Notkun
Undirhiti Til að baka kökur með stökkum botni og til að sjóða
niður matvæli.
Grillað með viftu Til að steikja stærri kjötstykki eða kjúklinga með beinum
á einni hillustöðu. Einnig til að gera gratín-rétti og til að
brúna.
Brauð- og pítsub-
ökun
Til að baka mat í einni hillustöðu til að fá meiri brúnun
og stökkan botn. Þegar þú notar þessa aðgerð skaltu
lækka ofnhitann um 20 - 40°C frá stöðluðu hitastigi sem
þú notar við eldamennsku með aðgerðinni Hefðbundið
(yfir- og undirhiti).
Afþíða Þessa aðferð má nota til að afþíða frosinn mat eins og
grænmeti og ávexti. Afþíðingartíminn fer eftir magni og
stærð frosna matarins.
Eldað með
sparnaðarblæstri
Til að matreiða bakaðar vörur í formum í einni hillust-
öðu. Til að spara orku á meðan eldað er. Nota verður
þessa aðgerð í samræmi við eldunartöflu fyrir sparnað-
arblástur í kaflanum Ábendingar og ráð til að ná
óskuðum eldunarárangri. Til að fá meiri upplýsingar um
ráðlagðar stillingar, sjá eldunartöfluna. Þessi aðgerð
var notuð til að skilgreina orkunýtniflokk í samræmi við
EN 60350-1.
Hröð upphitun Til að stytta upphitunartímann.
Eldglæðing Til að hreinsa ofninn. Hátt hitastigið brennir burt öll
óhreinindi og matarleifar. Þú getur síðan fjarlægt þær
með klút þegar ofninn er orðinn kaldur.
Aðgerðin Hröð upphitun
Aðgerðin Hröð upphitun minnkar
upphitunartímann.
Settu ekki mat í ofninn þegar
aðgerðin Hröð upphitun er í
gangi.
1. Stilltu aðgerðina Hröð upphitun. Sjá
töflu yfir Ofnaðgerðir.
2. Snúðu hnúðnum fyrir hitastig til að stilla
hitann.
Hljóðmerki heyrist þegar heimilistækið er
við rétt hitastig.
Aðgerðin Hröð upphitun slokknar
ekki eftir hljóðmerkið. Þú verður
að slökkva á aðgerðinni
handvirkt.
3. Stilltu ofnaðgerð.
ÍSLENSKA 12










