User manual

Vísir fyrir hitastig
Þetta heimilistæki er selt í
Frakklandi.
Samkvæmt reglugerðum sem
gilda í þessu landi þarf að fylgja
með því sérstakur búnaður (sjá
mynd) sem koma á fyrir í neðra
hólfi ísskápsins sem sýnir hvar
kaldasta svæði hans er.
Færanlegar hillur
Í hliðum ísskápsins eru margar höldur
þannig að hægt er að koma hillunum fyrir
hvar sem óskað er.
Hurðasvalir staðsettar
Til að hægt sé að geyma matarumbúðir af
ýmsum stærðum er hægt að hafa
hurðarhillurnar í mismunandi hæð.
Hæð hillnanna er stillt svona: Dragðu
hilluna smám saman út í áttina sem
örvarnar sýna þar til hún er laus og komdu
henni aftur fyrir í þeirri hæð sem óskað er.
Frysting ferskra matvæla
Frystihólfið hentar til frystingar á ferskum
matvælum og geymslu á frosnum og
djúpfrystum mat í langan tíma.
Ekki er þörf á að breyta miðlungsstillingunni
þegar frysta á fersk matvæli.
Frystingin gengur þó hraðar fyrir sig ef
hitastillinum er snúið yfir á hærri stillingu til
að fá sem mesta kælingu.
VARÚÐ! Í slíku ástandi gæti
hitastig kælihólfsins farið niður
fyrir 0°C. Ef það gerist þarf að
stilla hitastillinn aftur á hlýrri
stillingu.
ÍSLENSKA 46