User manual
– Á bóndabýlum; starfsmannaeldhúsum í verslun, á
skrifstofum og öðrum vinnustöðum;
– Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og á
öðrum íbúðarstöðum.
• Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta heimilistæki.
• Vatnsþrýstingurinn á tækinu (hámark og lágmark) verður að
vera á milli 0.5 (0.05) / 8 (0.8) bör (MPa)
• Hlýða skal hámarksfjöldanum, matarstell fyrir 13 .
• Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
• Settu hnífapör í hnífaparaskörfuna þannig að beitti endinn
vísi niður eða settu þau lárétt í hnífaparaskúffuna með beittu
hliðina niður.
• Ekki skilja heimilistækið eftir eftirlitslaust með opna hurð til að
forðast að stíga óvart á hana.
• Áður en eitthvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá rafmagnsinnstungunni.
• Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að hreinsa
heimilistækið.
• Ef heimilistækið er með lofttúður í undirstöðunni má ekki hylja
þær, t.d. með gólfteppi.
• Heimilistækið á að tengja við vatn með nýju slöngunum sem
fylgja með því. Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Ekki setja upp eða nota heimilistækið þar
sem hitastigið er lægra en 0°C.
• Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
• Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
• Gættu þess að heimilistækið sé sett upp
undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
ÍSLENSKA 5










