User manual
Ef hurðin er opin lengur en í 30
sekúndur á meðan
þurrkunarstigið er gangi mun
kerfið sem er í gangi enda. Það
gerist ekki ef hurðin er opnuð
með AutoOpen-aðgerðinni.
Reyndu ekki að loka hurð
heimilistækisins næstu 2 mínútur
eftir að AutoOpen opnar hana
sjálfvirkt, þar sem það kann að
valda skemmdum á
heimilistækinu.
Ef hurðin er seinna lokuð í aðrar
3 mínútur, endar kerfið sem er í
gangi.
Þvottakerfi afturkallað
Þrýstið kerfistakkanum og haldið honum
niðri þar til tækið er í kerfisval-stillingu.
Gætið þess að það sé þvottaefni í
þvottaefnishólfinu áður en nýtt þvottakerfi
er sett í gang.
Lok þvottakerfis
Þegar þvottakerfinu er lokið er logar vísirinn
.
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva eða
bíddu eftir að heimilistækið skipti yfir í
biðstöðu. Ef þú opnar hurðina áður en
biðstaða er virkjuð er sjálfkrafa slökkt á
heimilistækinu.
2. Skrúfaðu fyrir vatnskranann.
Góð ráð
Almennt
Eftirfarandi ráðleggingar tryggja bestu þrif
og hreinsun í daglegri notkun og hjálpa við
að vernda umhverfið.
• Fjarlægja skal matarleifar af diskunum
og kasta í ruslið.
• Ekki skal for-hreinsa diskana handvirkt.
Ef með þarf skal nota for-þvotta kerfi (ef
til staðar) eða velja kerfi með
forþvottafasa.
• Ávallt skal nota allt rýmið í körfunum.
• Þegar verið er að fylla í tækið skal
tryggja að vatnið í sprautuörmunum nái
alveg að diskunum og geti þvegið þá
almennilega. Tryggið að hlutirnir snertist
ekki eða liggi yfir hvor öðrum.
• Hægt er að nota þvottaefni fyrir
uppþvottavélar, gljáa og salt út af fyrir
sig eða hægt er að nota samsettar
þvottaefnistöflur (t.d. ''3 í 1'', ''4 í 1'', ''Allt
í 1''). Fylgið leiðbeiningunum sem standa
á pakkningunni.
• Stillið á þvottakerfi eftir því hvað er í
vélinni og hversu óhreint það er. Með
ECO kerfinu nýtist vatnið og orkan best
fyrir borðbúnað og hnífapör með
venjulegum óhreinindum.
Notkun salts, gljáa og þvottaefnis
• Aðeins skal nota salt, gljáa og þvottaefni
ætlað fyrir uppþvottavélar. Aðrar vörur
geta valdið skemmdum á heimilistækinu.
• Gljáinn aðstoðar á meðan á síðasta
skolunarferli stendur, við að þurrka
diskana án bletta eða ráka.
• Samsettar þvottaefnistöflur eru yfirleitt
viðeigandi á svæðum þar sem harka
vatns er allt að 21 °dH. Á svæðum þar
sem farið er umfram þessi mörk verður
að nota gljáa og salt auk
þvottaefnistaflnanna. Hinsvegar, á
svæðum þar sem harka vatnsins er mjög
mikil er mælt með að nota þvottaefni
(duft, gel, töflur án aukalegrar virkni),
ÍSLENSKA 14










