User manual
Eldun á kjöti og fiski
• Notaðu djúpa pönnu fyrir mjög feitan
mat til að koma í veg fyrir að blettir sem
geta verið varanlegir komi í ofninn.
• Láttu kjötið standa í um það bil 15
mínútur áður en þú skerð það svo að
vökvinn seytli ekki út.
• Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum á meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartöflur
Varðandi eldunartöflur vísast til
Uppskriftabókarinnar sem finna má á
vefsvæði okkar.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Athugasemdir um hreinsun
• Hreinsaðu tækið að framan með mjúkum
klút með volgu vatni og hreinsiefni.
• Til að hreinsa málmfleti skal nota sérstakt
hreinsiefni.
• Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja
notkun. Uppsöfnun fitu og annarra
matarleifa kann að leiða til eldsvoða.
• Hreinsaðu matarleifar og fitu vandlega
af lofti hólfsins.
• Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með
sérstökum ofnahreinsi.
• Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja
notkun og láttu þá þorna. Notaðu
mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
• Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist
ekki við skal ekki hreinsa þá með hörðum
efnum, hlutum með beittum brúnum eða í
uppþvottavél. Það getur valdið
skemmdum á viðloðunarfríu húðinni.
• Þurrkaðu ofninn þegar ofnrýmið er blautt
eftir notkun.
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins
með rökum klút eða svampi.
Þurrkaðu hana með mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða
svarfefni þar sem þau geta
skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins með
sömu varúðarráðstöfunum.
Hurðarþéttingin hreinsuð
• Athugaðu reglulega hurðarþéttinguna.
Hurðarþéttingin er umhverfis ramma
ofnrýmisins sjálfs. Ekki nota tækið ef
hurðarþéttingin er skemmd. Hafðu
samband við viðgerðaþjónustuna.
• Til að hreinsa hurðarþéttinguna, skal
nota mjúkan klút með volgu vatni og
milda sápu.
Að fjarlægja hillustuðninginn
Áður en viðhald fer fram skal ganga úr
skugga um að tækið sé kalt. Það er hætta á
bruna.
Til að hreinsa heimilistækið skaltu fjarlægja
hillustoðirnar.
1. Togaðu stoðirnar varlega upp og út frá
framlæsingunni.
ÍSLENSKA
28










