User manual

breitt er yfir matinn eða honum er
pakkað inn, einkum ef hann er
bragðsterkur
matnum er komið þannig fyrir að loft geti
leikið óhindrað um hann
Ábendingar um kælingu
Gagnlegar ábendingar:
Kjöt (allar gerðir) : Pakka inn í pólýþen-
poka og setja á glerhilluna fyrir ofan
grænmetisskúffuna.
Aðeins er öruggt að geyma mat svona í
mesta lagi í einn eða tvo daga.
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv.: Breiða
skal yfir slík matvæli og þau má setja á
hvaða hillu sem er.
Ávextir og grænmeti: Slík matvæli skal
þvo rækilega og setja í sérstaka(r)
skúffu(r) sem fylgir/fylgja með.
Smjör og ostur: Setja í sérstakar
loftþéttar umbúðir eða pakka inn í
álpappír eða pólýþen-poka til að útiloka
eins mikið loft og hægt er.
Flöskur: Þær þurfa lok og ætti að geyma í
hillunni í hurðinni, eða (ef til staðar) í
flöskurekkanum.
Banana, kartöflur, lauk og hvítlauk, án
umbúða, má ekki geyma í kæliskápnum.
Ábendingar varðandi frystingu
Nokkrar mikilvægar ábendingar til að
hjálpa þér að fá sem mest út úr frystingunni:
Hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á sólarhring er sýnt á
merkiplötunni;
frystingarferlið tekur sólarhring og á því
tímabili skal ekki bæta við neinum
matvælum sem þarf að frysta;
aðeins skal frysta hágæða matvæli, fersk
og vel hreinsuð;
undirbúa skal mat í litlum skömmtum til
að hann geti frosið hratt og alveg í gegn
og til þess að seinna sé hægt að afþíða
aðeins það magn sem þarf;
pakka skal matnum inn í álpappír eða
plast og gætið þess að pakkarnir séu
loftþéttir;
ekki láta ferskan, ófrosinn mat snerta mat
sem er þegar frosinn, til að forðast
hækkun hitastigs þess síðarnefnda;
magur matur geymist betur og lengur en
feitur; salt minnkar geymsluþol matar;
vatn frýs og ef þess er neytt strax eftir að
það er tekið úr frystinum kann það að
valda frostbruna á húð;
ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna á
hverjum pakka sem settur er í frystinn til
að hægt sé að fylgjast með
geymslutímanum.
Ráð varðandi geymslu frystra matvæla
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best,
skal:
gæta þess að frystivara úr búð hafi verið
geymd á fullnægjandi hátt í búðinni;
tryggja að frystivara sé flutt úr búðinni
og í frystinn á sem skemmstum tíma;
ekki opna dyrnar oft eða hafa þær
opnar lengur en brýn nauðsyn krefur;
eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og
ekki er hægt að frysta hann aftur;
ekki geyma matvöru lengur en
framleiðandi vörunnar mælir með.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
ÍSLENSKA 19