User manual

Fjarlægðu frystikörfurnar úr frystinum.
Frystikörfurnar hafa
stövðunarmark sem
kemur í veg fyrir að
þær séu teknar út af
slysni eða detti út.
Á þeim tíma þegar
verið er að fjarlægja
körfuna úr fyrstihólf-
inu, togaðu körfuna í
áttina til þín (1) og,
þegar þú nærð endapunkti, skaltu fjarlægja
körfuna með því að ýta framhliðinni upp (2).
2
1
Á þeim tíma er þú setur körfurnar aftur i,
hallaðu framhlið körfunnar til þess að setja
han inn í frystihólfið. Þegar þú ert kominn
yfir endamörkin, skaltu ýta körfunum aftur á
sinn stað.
Ísmolage
Með þessu heimilistæki fylgir einn bakki til
ísmolagerðar.
1. Fyllið bakkann af vatni.
2. Setjið bakkann í frystihólfið
Mikilvægt! Notið ekki málmverkfæri til að
fjarlæga bakkann úr frystinum.
Góð ráð
Eðlileg vinnsluhljóð
Mögulega heyrist lágt gutl og suðuhljóð
þegar kælimiðlinum er dælt í gegnum
spíralana eða leiðslurnar. Þetta er í lagi.
Þegar þjappan er í gangi er kælimiðlinum
dælt eftir rásinni og þá heyrist suð og
sláttur úr þjöppunni. Þetta er í lagi.
Hitaútvíkkunin gæti valdið því að skyndi-
legt brak heyrist. Það er náttúrulegt,
hættulaust efnislegt fyrirbærii. Þetta er í
lagi.
Þegar kviknar eða slokknar á þjöppunni
heyrist lágur smellur í hitastillinum. Þetta
er í lagi.
Ábendingar um orkusparnað
Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur.
Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastillirinn
er stilltur á lágan hita og heimilistækið er
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því
að frost eða ís hleðst utan á eiminn. Ef
það gerist skal stilla valskífuna á hærri
hita til að leyfa sjálfvirka afþiðnun en í því
felst líka raforkusparnaður.
Ábendingar um kælingu á ferskum
matvælum
Ísskápurinn starfar best ef:
ekki er geymdur heitur matur eða vökvar
sem uppgufun er af í ísskápnum
breitt er yfir matinn eða honum er pakk-
að inn, einkum ef hann er bragðsterkur
matnum er komið þannig fyrir að loft geti
leikið óhindrað um hann
Ábendingar um kælingu
Góð ráð:
Kjöt (allar gerðir) : pakkið inn í pólýþen-
poka og setjið á glerhilluna fyrir ofan græn-
metisskúffuna.
Aðeins er öruggt að geyma mat svona í
mesta lagi í einn eða tvo daga.
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv.: breiða
skal yfir slík matvæli og þau má setja á
hvaða hillu sem er.
Ávextir og grænmeti: slík matvæli skal þvo
rækilega og setja í sérstaka(r) skúffu(r) sem
fylgir/fylgja með.
Smjör og ostur: setjið í sérstakar loftþéttar
umbúðir eða pakkið inn í álpappír eða pól-
ýþenpoka til að þrýsta eins miklu lofti út og
hægt er.
Mjólk: á umbúðunum á að vera lok og mjólk
á að geyma í flöskugrindinni í hurðinni.
Banana, kartöflur, lauk og hvítlauk, án um-
búða, má ekki geyma í ísskápnum.
Ráð varðandi frystingu
Nokkrar mikilvægar ábendingar til
hjálpa þér að fá sem mest út úr frystingunni:
hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á 24 klst. er sýnt á tegundarspjald-
inu;
frystingarferlið tekur 24 tíma. Ekki skal
bæta neinum ófrosnum mat í frystinn á
því tímabili;
ÍSLENSKA 56