operation manual

IS
- 97 -
fljótt bitlausa. Standið ávallt ofan við trjábolinn
ef að sagað er í halla.
1. Trjábolur sem er á undirstöðu alla leng-
dina: Sagið ofanfrá og gangið úr skugga um
að ekki sé sagað ofan í jörðina (mynd 13A).
2. Trjábolur á undirstöðu á einum enda:
Sagið fyrst 1/3 af þvermáli trjábolsins neð-
anfrá til þess að tryggja heilann skurð. Sagið
þvínæst að ofanverður í átt að mótliggjandi
skurðinum til þess að koma í veg fyrir að sö-
gin festist (mynd 13B).
3. Trjáborur á undirstöðum á báðum en-
dum: Sagið fyrst 1/3 af þvermáli trjábolsins
að ofanverður til að tryggja heilann skurð.
Sagið þvínæst að neðanverðu í átt að mótlig-
gjandi skurði til að koma í veg fyrir að sögin
festist (mynd 13C).
Besta leiðin til þess að saga trjábol í búta er
að setja bolinn á búkka. Ef það er ekki hægt
er hægt að lyfta bolnum upp með greinum
eða við og styðja hann þannig. Gangið úr
skugga um að trjábolurinn sé vel festur.
Sagað í lengdir á sagarbúkka (mynd 14)
Til að auka öryggi notanda og til þess að auðvel-
da sögunarvinnu er best að hafa skurðarstöðuna
í réttri hæð.
A. Haldið söginni með báðum höndum fastri og
látið sögina saga hægramegin við líkamann.
B. Haldið vinstri handleggi eins beinum og hægt
er.
C. Drei ð þyngdinni á báða fætur.
Varúð! Athugið að keðjan og sverðið sé nægjan-
lega vel smurð á meðan að unnið er með söginni.
7. Hreinsun, umhirða, geymsla og
pöntun varahluta
Takið kertahettuna ávalt af kertinu áður en tækið
er hreinsað eða ef hirða á um það.
7.1 Hreinsun
Haldið öryggisbúnaði, loftopum og mótorhlí-
finni eins rykfríum og lausum við óhreinindi
og kostur er. Þurrkið af tækinu með hreinum
klút eða blásið af því með þrýstilofti við lágan
þrýsting.
Mælt er með því að tækið sé hreinsað eftir
hverja notkun.
Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og
dálítilli sápu. Notið ekki hreinsi- eða leysiefni
þar sem þau geta skemmt plasthluta tækisins.
Gætið þess að vatn berist ekki inn í tækið.
7.2 Umhirða
Viðvörun: Öll umhirða um þetta tæki sem ekki
er talin upp í þessum leiðbeiningum veður að láta
framkvæma af viðurkenndum þjónustuaðila.
7.2.1 Loftsía
Tilmæli: Notið sögina aldrei án loftsíu. Ryk og
óhreinindi sogast annars inn í mótorinn og skem-
ma hanna. Haldið loftsíunni hreinni! Loftsíuna ver-
ður að hreinsa á 20 vinnutíma millibili eða skipta
um hana.
Hreinsun loftsíu (myndir 15A – 15B)
1. Fjarlægið efri loftsíuhlíf (14) með því fjarlægja
festiskrúfuna (A) á hlí nni. Nú er hægt að fjar-
lægja hlí na (mynd 15A).
2. Dragið loftsíuna (15) út (mynd 15B).
3. Hreinsið loftsíuna. Hreinsið loftsíuna með
hreinu og heitu sápuvatni. Látið hana þorrna
að fullu í frísku lofti.
Tilmæli: Mælt er með að eiga aukalegar loftsíur
til vara.
4. Setjið loftsíuna aftur í tækið. Setjið loftsíuhlí-
na (14) aftur á tækið. Athugið að loftsíuhlí n
sitji rétt á sínum stað. Setjið festiskrúfuna aftur
á sinn stað og herðið hana.
7.2.2 Bensínsía
Tilmæli: Notið sögina aldrei án bensínsíu.
Ávallt eftir 100 vinnustundir verður að hreinsa
bensínsíuna eða skipta um hana ef hún hefur
orðið fyrir skemmdum. Tæmið eldsneytisgeyminn
áður en skipt er um bensínsíuna.
1. Takið bensínlokið af opinu.
2. Beygið vír eins og við á.
3. Stingið honum inn í opið á eldsneytisgey-
minum og krækið í bensínleiðsluna. Dragið
bensínleiðsluna verlega að opinu þar til að
hægt sé að grípa í hana með ngrunum.
Tilmæli: Dragið leiðsluna ekki alveg út úr geymi-
num.
4. Dragið síuna út úr geyminum.
5. Takið sína af með því að snúa henni aðeins
og hreinsið hana. Ef hún er skemmd, hendið
henni þá.
6. Setjið nýja síu eða hreina síu í tækið. Stingið
enda síunnar ofan í geymisopið. Gangið úr
skugga um að sían sitji í neðra horni geymi-
sins. Færið sína á sinn stað með löngu skrúf-
járni.
Anl_GMS_E_45_EV_SPK7-2.indb 97Anl_GMS_E_45_EV_SPK7-2.indb 97 27.06.2019 13:53:5127.06.2019 13:53:51