User manual

Ábyrgðarskilmálar
46
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR
ÍSLAND
Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjasala
Seljandi veitir kaupanda, TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ*, frá tilgreindum afgreiðslutíma og er
hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum þeim hluta þess sem áfátt kann að vera,
enda bendi líkur til þessum framleiðslu-eða efnisgalla sé að ræða. Ábyrgðin nær til
efnis og vinnulauna vegna a hugsanlegra viðgerða, auk ferðakostnaðar (laun og akstur)
viðgerðarmanns allt að 15 km hvora leið, eða flutnings tækis sömu vegalengd sé tækð
fyrirferðarmeira eða þyngra en að kaupandi geti auðveldlega komið því sjálfur á
verkstæði seljanda eða þess, sem hann vísar til.
Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynningu um bilun svo sem símakostnað og annan
slíkan. Sé bilað tæki utan byggðarlags seljanda, skal það borið undir hann, hvort senda
skuli það til viðgerðar eða kveðja til nærstaddan viðgerðarmann.
Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess að nota góðar og vel merktar umbúðir, fara
að fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á um sérstakan flutningsbúnað og mögu-
leikana á að tryggja tækið gegn flutningsskemmdum. Ennfremur skal fylgja lýsing á
bilun. Skuli kvaddur til viðgerðarmaður, afgreiðir seljandi varahluti til viðgerðarinnar á
sinn kostnað gegn því að honum séu endursendir hinir gölluðu hlutir ef hann óskar.
Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðarmanns að ofangreindu marki (15 km) greiðir sel-
jandi eftir sundurliðuðum reikningi viðgerðarmanns enda beri reikningurinn með sér
eftirtalin atriði:
1. Heiti tækis, gerð, númer og afgreiðslutíma, samkvæmt þessu skírteini.
2. Viðgerðardag og lýsingu á framkvæmdri viðgerð.
3. Fullt nafn og heimilisfang viðgerðarmanns eða fyrirtækis þess sem viðgerðina
3. annaðist.
Ábyrgðin nær ekki til bilana, sem framleiðanda eða seljanda verður ekki um kennt, svo
sem bilana, sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða misnotkun, slælegu viðhaldi,
slysni eða óhöppum, náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins eða veitunnar
o.s.frv.
Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns vegna hugsanlegra gall á tækinu, en kau-
panda er bent á möguleikana á að tryggja sig gegn slíku hjá tryggingafélögum.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur strax og hans
kann að verða vart og að ekki hafi verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi seljanda,
nema í samráði við hann.
Bræðurnir Ormsson ehf.
Lágmúli 8, pósthólf 8760, 128 Reykjavik, sími 530-2800, Fax 530-2810, www.ormsson.is
*Bræðurnir Ormsson ehf. veita ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ á öllum AEG þvottavélum á
Íslandi sem fyrirtækið annast sölu og dreifingu á skv. skilmálunum hér að framan.