Manual

94
IS
11. HREINSUN OG VIÐHALD
Skoðaðu ástandið á rafhlöðum vörunnar. Skiptu um þær ef
vart verður við rafhlöðuleka eða -galla.
Notaðu klút vættan í sápu og heitu vatni til þess að hreinsa
ytri skálar, höfuðspöng og eyrnapúða.
ATHUGASEMD: EKKI setja heyrnarhlífarnar ofan í vatn.
Ef heyrnarhlífarnar blotna í rigningu eða af svita, skaltu snúa
eyrnahlífunum út, fjarlægja eyrnapúða og frauðfóður og láta
allt þorna áður en þær eru settar saman á ný. Eyrnapúðar og
frauðfóður getur skemmst við notkun og leita ætti reglubundið
að sprungum í þeim og öðrum skemmdum. 3M mælir með því
að skipt sé um frauðfóður og eyrnapúða að minnsta kosti
tvisvar á ári við reglubundna notkun til þess að tryggja
áreiðanlega hljóðdeyngu, hreinlæti og þægindi.
Skemmist eyrnapúði, ber að skipta um hann. Sjá kaa um
varahluti hér að neðan.
11.1. AÐ FJARLÆGJA/SKIPTA UM EYRNAPÚÐA
(Mynd D:1 - D:3)
D:1 Settu ngur undir innri brún eyrnapúðans og kipptu
honum ákveðið beint út til þess að fjarlægja hann.
D:2 Fjarlægðu frauðfóður sem fyrir er og settu nýtt í staðinn.
D:3 Komdu annarri hlið eyrnapúðans fyrir í grópinni á
eyrnaskálinni og þrýstu svo hinum megin á þar til eyrnapúðinn
smellur á sinn stað.
11.2. 
(Mynd E:1 - E:2 og taa H)
Það gæti þurft að skipta um hjálmfestiplötu til þess að festa
hlífarnar rétt á hinar ýmsu tegundir iðnaðaröryggishjálma.
Finndu þá festiplötu sem mælt er með í töu H. Hjálmurinn er
afhentur með P3E hjálmfestingu. Nota þarf skrúfjárn til þess
að skipta um hjálmfestingarplötu.
(E:1) Losaðu skrúfuna sem heldur plötunni og fjarlægðu
hana.
(E:2) Festu viðeigandi plötu á þannig að platan fyrir vinstri (L)
og hægri (R) sé á réttum heyrnarhlífum, eftir því sem við á, og
hertu svo skrúfuna.
12. VARAHLUTIR OG FYLGIHLUTIR
Vörunúmer Heiti
HY79 Hreinlætisbúnaður.
Hreinlætisbúnaður til að skipta um,
tveir deypúðar, tveir frauðhringir og
tveir ásmelltir þéttihringir.
HY100A Einnota verndarhlífar.
Einnota hlíf sem auðvelt er að setja á
eyrnapúðana. 100 pör í pakka.
HYM1000 Hljóðnemahlíf.
Raka- og vindhelt hreinlætislímband
sem verndar talnemann og lengir
endingartíma hans um leið. Pakki
með 4,5 metra lengju dugar til um
það bil 50 skipta.
M995/2 Vindhlíf fyrir electret-hljóðnema.
Virkar vel á talnema (electret) gegn
vindgnauði, verndar hann og lengir
endingartímann.
FR08 FR08 agja.
Raftenging fyrir FR09/ACK053.
ACK053 Hleðslurafhlaða.
NiMH hleðslurafhlaða kemur í stað
tveggja venjulegra AA 1,5 V
rafhlaðna.
FR09 Hleðslutæki.
Hleðslutæki fyrir ACK053 rafhlöður.
MT53N-12/1 Electret-hljóðnemi.
Staðalbúnaður með vörunni.
11080 SV/1 Rafhlöðulok.
13. GEYMSLA
Geymdu vöruna á þurrum og hreinum stað fyrir og eftir
notkun.
Geymdu vöruna alltaf í upprunalegum umbúðum, fjarri
hitagjöfum og þar sem hún verður ekki fyrir áhrifum af
sólarljósi, ryki eða kemískum efnum sem geta skaðað
hana.
Hitastig við geymslu: -4°F (-20°C) til 104°F (40°C).
Loftraki: <90%.
Útgáfur fyrir höfuðspöng og hálsspöng:
Gættu þess að enginn þrýstingur sé á höfuðspöngina eða
hálsspöngina og að púðarnir þrýstist ekki saman.
Útgáfa fyrir útbúnaðarfestingu:
Gættu þess að eyrnapúðarnir séu í vinnustillingu (sjá
mynd D:6) og að á púðunum sé ekki þrýstingur.
ATHUGASEMD: Fjarlægðu rafhlöðurnar þegar varan er sett í
geymslu um langa hríð.